EN

Prómeþeifur

Áskrift að tónleikaröð eða Regnbogakorti tryggir þér öruggt sæti á besta verðinu með 20% afslætti
Dagsetning Staðsetning Verð
11. feb. 2027 » 19:30 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa 3.100 - 11.500 kr.
Miðasala hefst 8. júní
  • Efnisskrá

    George Crumb A Haunted Landscape
    Claude Debussy Syrinx
    Jean Sibelius Luonnotar
    María Huld Markan Sigfúsdóttir Aequora
    Aleksandr Skrjabín Prómeþeifur, ljóð eldsins

  • Hljómsveitarstjóri og sópran

    Barbara Hannigan

  • Einleikarar

    Bertrand Chamayou píanó
    Rafael Adobas Bayog flauta

  • Ljósahönnun

    Fabiana Piccioli

Listrænn stjórnandi og aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Barbara Hannigan færir okkur tónleika sem hjúpaðir eru dulúð og sækja innblástur í fornar goðsagnir. Staðarlistamaðurinn, Bertrand Chamayou píanóleikari og Rafael Adobas Bayog, nýráðinn leiðari flautudeildar hljómsveitarinnar, eru í einleikshlutverkum kvöldsins. Einn af meisturum litbrigðanna, bandaríska tónskáldið George Crumb, dregur upp draugalega mynd af ímynduðu landslagi þar sem andar fortíðar eru á sveimi. Dreymandi einleikur Debussys um grísku gyðjuna Syrinx leiðir okkur svo inn í tónaljóðið Luonnotar fyrir sópran og hljómsveit eftir finnska tónskáldið Jean Sibelius. Þar flytur Hannigan á ljóðrænan hátt söguna af því hvernig Luonnotar, gyðja lofts og hafs, skóp heiminn úr brotum af andareggi. 

Gríska sagan um Prómeþeif, sem stal eldinum frá guðunum til að færa mönnunum í formi visku og þekkingar hefur verið tónskáldum innblástur um aldir. Rússneska tónskáldið Aleksandr Skrjabín lét ekki sitt eftir liggja og skrifaði tónaljóðið Ljóð eldsins fyrir píanó og hljómsveit þar sem samspil lita, ljóss og skugga skapar einstaka stemningu í draumkenndri tónlistinni. Einnig hljómar verkið Aequora eftir Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur sem sækir innblástur í hafdjúpin og lífríki þeirra.