EN

Rússnesk veisla

Áskrift að tónleikaröð eða Regnbogakorti tryggir þér öruggt sæti á besta verðinu með 20% afslætti
Dagsetning Staðsetning Verð
12. mar. 2020 » 19:30 - 21:15 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa 2.600 - 8.100 kr.
Tónleikakynning » 12. mar. kl. 18:00

Rússneski píanósnillingurinn Olga Kern vakti heimsathygli þegar hún hlaut fyrstu verðlaun í Van Cliburn-keppninni í Texas árið 2001, fyrsta konan í 30 ára sögu keppninnar til að hreppa gullpeninginn. Síðan hefur hún komið fram í helstu tónleikasölum austan hafs og vestan, meðal annars Carnegie Hall og La scala í Mílanó. Rúmur áratugur er síðan Olga Kern lék síðast á Íslandi og hafa margir unnendur píanóleiks beðið endurkomu hennar með óþreyju. Tónlist Rakhmanínovs er eins konar sérgrein hennar og í þetta sinn flytur hún þriðja píanókonsert meistarans, verk sem lengi vel var talið óspilandi en er nú ein hans dáðasta smíð.

Á efnisskránni eru einnig verk eftir tvo aðra rússneska meistara. Rómeó og Júlía er ein áhrifamesta ástarsaga allra tíma og hefur orðið ótal listamönnum innblástur. Í forleik sínum speglar Tsjajkovskíj átakanlegan harm og spennu leikritsins með eftirminnilegum hætti. Stravinskíj náði fyrst athygli heimsins árið 1910 með glæsilegri tónlist sinni við ballettinn Eldfuglinn. Þetta verk hefur allar götur síðan verið talið til meistaraverka tónlistar á 20. öld og hér hljómar svíta með frægustu þáttunum, meðal annars kraftmiklum og spennandi vítisdansinum.

Hljómsveitarstjóri er Bjarni Frímann Bjarnason, sem hefur getið sér einkar gott orð fyrir frammistöðu sína undanfarin misseri og var nýverið valinn tónlistarflytjandi ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum.  

Sækja tónleikaskrá