EN

Sakari stjórnar blásarasveitinni

Kammertónleikar

Áskrift að tónleikaröð eða Regnbogakorti tryggir þér öruggt sæti á besta verðinu með 20% afslætti
Dagsetning Staðsetning Verð
13. nóv. 2026 » 18:00 » Föstudagur Norðurljós | Harpa 4.900 kr.
Miðasala hefst 8. júní
  • Efnisskrá

    Paul Dukas Fanfare pour précéder la péri
    Darius Milhaud Dixtour
    Ígor Stravinskíj Sinfóníur fyrir blásara
    Ruth Gipps Seascapes
    Magnus Lindberg Gran Duo

  • Hljómsveitarstjóri

    Petri Sakari

  • Flytjendur

    Blásarasveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands

Hljómsveitarstjórinn Petri Sakari, fyrrum aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, leiðir blásarasveit hljómsveitarinnar í afar fjölbreyttri efnisskrá þar sem allir ættu að geta fundið sér eitthvað við hæfi. Glæsilegt lúðragjall úr ballettónlist Paul Dukas setur tóninn áður en smellin og stríðnisleg tónlist Milhaud tekur við. Tónlist Stravinskíjs, sem tileinkuð er minningu Claude Debussys, er íhugult og hátíðlegt verk sem lýkur með kyrrlátum kóral.

Enska tónskáldið Ruth Gipps var einstaklega fjölhæf og eftir hana liggur fjöldi verka, m.a. fimm sinfóníur. Sem óbóleikari hafði hún afar góða þekkingu á blásturshljóðfærum sem birtist í einstaklega fallegu verki fyrir 10 blásara þar sem hafið og ströndin leika aðalhlutverkin. Tónleikunum lýkur á kraftmiklu verki fyrir 24 blásara eftir eitt þekktasta tónskáld Finna á síðari árum, Magnus Lindberg. Í Gran Duo takast á tré- og málmblásarar þar sem tónblær hvors hóps fær að njóta sín til fulls.