EN

Schumann og Saariaho

Áshildur Haraldsdóttir leikur glitrandi flautukonsert eftir Kaiju Saariaho

Dagsetning Staðsetning Verð
14. jan. 2021 » 20:00 - 21:00 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa 2.400 – 5.700 kr.

Á þessum tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands hljóma verk eftir Robert Schumann og Kaiju Saariaho. Fjórða sinfónía Schumanns er tilfinningaþrungið og glæsilegt verk, þar sem hugmyndaauðgi og frumleiki tónskáldsins nýtur sín til fulls, enda bar frumútgáfa þess titilinn „Sinfónísk fantasía fyrir stóra hljómsveit“. Tónlistin er til skiptis dramatísk, dulúðug og sprellfjörug, enda Schumann þekktur fyrir að gefa hinum fjölbreyttustu tilfinningum útrás í tónlist sinni.

Einnig hljómar á tónleikunum glitrandi flautukonsert eftir Kaiju Saariaho, sem er eitt fremsta tónskáld samtímans. Hún samdi verkið, sem útleggst sem Draumvængur á íslensku, innblásin af fuglasöng í sínum ýmsu myndum, en einnig af sögum frumbyggja í Ástralíu. Verkið hefur fengið frábæra dóma og er almennt talið einn mikilvægasti flautukonsert síðustu áratuga. Einleikari í konsertinum er Áshildur Haraldsdóttir flautuleikari Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

Hljómsveitarstjóri er Daníel Bjarnason, aðalgestastjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, en hann hlaut nýverið ásamt hljómsveitinni tilnefningu til hinna virtu Grammy-verðlauna.

Takmarkað sætaframboð á tónleikana
Í samræmi við sóttvarnarlög er sætaframboð á tónleikana takmarkað við 100 tónleikagesti í fjórum sóttvarnarhólfum. Í það minnsta tvö auð sæti eru á milli allra pantana til að tryggja nálægðarmörk milli gesta. Gestum ber einnig skylda að vera með grímu á tónleikunum. Tónleikarnir eru um klukkustundarlangir án hlés. Við biðjum tónleikagesti að gæta vel að sóttvarnarreglum og kynna sér leiðbeiningar til tónleikagesta áður en mætt er á tónleikana. Stöndum saman, við erum öll almannavarnir.