| Dagsetning | Staðsetning | Verð | ||
|---|---|---|---|---|
| 19. sep. 2026 » 14:00 » Laugardagur | Eldborg | Harpa | 3.100 - 3.800 kr. | ||
| Miðasala hefst 8. júní | ||||
-
Efnisskrá
Tónlist eftir Wolfgang Amadeus Mozart - m.a. úr brot úr Eine Kleine Nachtmusik, sinfóníu nr. 1, konsert fyrir flautu og hörpu, Töfraflautunni, Rondo alla Turca og fleira
-
Hljómsveitarstjóri
Richard Schwennicke
-
Einsöngvarar
Bryndís Guðjónsdóttir sópran
Unnsteinn Árnason barítón
-
Kynnir
Halldóra Geirharðsdóttir
Við bjóðum í afmælisveislu eins mesta undrabarns tónlistarsögunnar, Wolfgangs Amedeusar Mozart. Á tónleikunum fögnum við 270 ára fæðingarafmæli tónskáldsins. Halldóra Geirharðsdóttir leikkona leiðir tónleikagesti í ferðalag um ólíka tónleikasali, lönd og menningarheima sem tónskáldið kynntist frá barnsaldri. Mozart var engum líkur, orkumikill og skemmtilegur, og líka dálítill prakkari. Sinfóníuhljómsveit Íslands flytur ásamt söngvurum valin verk sem draga upp lifandi mynd af afmælisbarninu. Í lok tónleikanna tökum við lagið með hljómsveitinni og syngjum Hann Tumi fer á fætur.
Þetta eru fjölskyldutónleikar, sniðnir að ungum áheyrendum og er lengd tónleikanna um ein klukkustund án hlés.
