EN

Undur Jarðar með Stjörnu-Sævari

Heillandi dagskrá um töfra jarðarinnar og hvernig þeir birtast í tónlist

Áskrift að tónleikaröð eða Regnbogakorti tryggir þér öruggt sæti á besta verðinu með 20% afslætti
Dagsetning Staðsetning Verð
25. sep. 2021 » 14:00 » Laugardagur Eldborg | Harpa 2.700 – 3.200 kr.
  • Efnisskrá

    Ævintýraleg tónlist um undur jarðar eftir John Williams, Richard Strauss, W.A. Mozart, Ferde Grofé og Jón Leifs

  • Hljómsveitarstjóri

    Noam Aviel

  • Kynnir

    Sævar Helgi Bragason

Á fyrstu Tónsprotatónleikum vetrarins verður haldið í magnað ferðalag þar sem undur veraldar eru meginstefið í tali, tónum og myndum. Stjörnu-Sævar stýrir þessum leiðangri þar sem töfrar jarðar og alheimsins fá nýja vídd í stórbrotnum og litríkum tónverkum. Við förum aftur í tímann þegar jörðin varð til, skoðum eld og ís, höf og eyðimerkur, veðrið, lífið sjálft og hvernig við tengjumst þessu öllu.

Sævar Helgi er landsþekktur fyrir þekkingu sína og ástríðu og er allt í senn, jarðfræðingur og kennari, dagskrárgerðarmaður og rithöfundur. Með óbilandi eldmóð í farteskinu munu fjallstindar, úthöf, eldgos og önnur náttúrufyrirbæri birtast tónleikagestum ljóslifandi á þessum stórbrotnu tónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar í Eldborg.

Sækja tónleikaskrá