EN

Ungir einleikarar

Dagsetning Staðsetning Verð
23. apr. 2027 » 19:30 » Föstudagur Eldborg | Harpa 3.100 - 6.100 kr.
Miðasala hefst 8. júní
  • Efnisskrá

    Efnisskrá kynnt síðar

  • Hljómsveitarstjóri

    Samuel Lee

  • Einleikarar

    Sigurvegarar keppninnar Ungir einleikarar

Á þessum tónleikum, sem bera yfirskriftina Ungir einleikarar, kynnumst við nokkrum af björtustu framtíðarstjörnum íslenskrar tónlistar. Tónleikarnir eru sannkölluð uppskeruhátíð, þar sem sigurvegarar í einleikara- og einsöngskeppni Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Listaháskóla Íslands stíga á svið með hljómsveitinni. Andrúmsloftið á þessum tónleikum er jafnan einstakt og eftirvæntingin mikil þegar ungu tónlistarfólki gefst færi á að koma fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands, á glæsilegasta tónleikasviði landsins, í Eldborg.

Hljómsveitarstjóri að þessu sinni er Samuel Lee, sem sigraði hina virtu Malko - stjórnendakeppni árið 2024 og stjórnaði Sinfóníuhljómsveit Íslands á síðasta starfsári á eftirminnilegum tónleikum. Undirtektir gesta á tónleikunum voru afar góðar og því er honum boðið hingað á nýjan leik í þetta gefandi, en krefjandi verkefni.

Einleikarakeppnin fer fram í byrjun árs 2027 og verða nöfn sigurvegara og efnisskrá tónleikanna birt á vef hljómsveitarinnar þegar úrslit liggja fyrir.