EN

Ungir einleikarar

Tryggðu þér besta verðið með 20% afslætti með því að kaupa miða á ferna tónleika eða fleiri – Regnbogakort
Dagsetning Staðsetning Verð
25. maí 2022 » 19:30 » Miðvikudagur Eldborg | Harpa 3.800 – 4.800 kr.

Framtíð tónlistarlífs á Íslandi hvílir á herðum þeirra ungu hljóðfæraleikara og söngvara sem um þessar mundir taka sín fyrstu skref á stóra sviðinu. Það er sérstakt tilhlökkunarefni þegar framúrskarandi ungt tónlistarfólk stígur fram sem einleikarar með Sinfóníuhljómsveit Íslands og njóta árangurs þrotlausrar vinnu. Í salnum sitja fjölskylda og vinir sem hafa fylgst með tónlistarnáminu um margra ára skeið og fagnaðarlætin í Eldborg eru aldrei einlægari en á þessum skemmtilegu og spennandi tónleikum.

Einleikarar á tónleikunum voru valdir í samkeppni sem haldin var í samstarfi við Listaháskóla Íslands í október 2021.

Skólakortshafar fá miða á tónleikana á 1.900 kr. hvar sem er í salnum.

Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir mezzósópran var einnig einn af  sigurvegurum keppninnar í ár, en af óviðráðanlegum orsökum frestast framkoma hennar á tónleikunum þar til á næsta ári.

Sækja tónleikaskrá