EN

Vínartónleikar 2022

Gleðilegt nýtt tónlistarár!

Áskrift að tónleikaröð eða Regnbogakorti tryggir þér öruggt sæti á besta verðinu með 20% afslætti
Dagsetning Staðsetning Verð
24. feb. 2022 » 19:30 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa 3.900 – 9.500 kr.
25. feb. 2022 » 19:30 » Föstudagur Eldborg | Harpa 3.900 – 9.500 kr.
26. feb. 2022 » 16:00 » Laugardagur Eldborg | Harpa 3.900 – 9.500 kr.
26. feb. 2022 » 19:30 » Laugardagur Eldborg | Harpa 3.900 – 9.500 kr.
  • Efnisskrá

    Óperettutónlist, valsar og polkar eftir Johann Strauss, Franz Lehár, Emmerich Kálman, Hans Christian Lumbye og fleiri.

  • Hljómsveitarstjóri

    Kornilios Michailidis

  • Einsöngvarar

    Herdís Anna Jónasdóttir
    Gissur Páll Gissurarson

  • Dansarar

    Þorkell Jónsson, Denise Margrét Yaghi, Gylfi Már Hrafnsson, María Tinna Hauksdóttir

  • Ljósahönnun

    Helgi G. Thoroddsen

Tónleikakynning » 24. feb. kl. 18:00

Hinir sívinsælu Vínartónleikar eru sannkölluð veisla og sú glaðværa tónlist sem þar hljómar gefur tóninn fyrir nýtt tónlistarár. Meðal þess sem hljómar eru valsar og polkar eftir Johann Strauss yngri, meðal annars Keisaravalsinn og Dónárvalsinn, auk forleiksins að Leðurblökunni. Einnig hljómar norræn tónlist innblásin af dönsum Vínarborgar: hið sívinsæla kampavínsgalopp Lumbyes en einnig kampavínsvalsinn Moët & Chandon eftir Ellen Sandels, sem var eitt helsta kventónskáld Svíþjóðar um aldamótin 1900.

Tveir helstu einsöngvarar Íslands koma fram á tónleikunum, auk þess sem dansarar ljá þeim sérstakan hátíðarblæ. Herdís Anna Jónasdóttir vakti stormandi lukku sem Violetta í La traviata í uppfærslu Íslensku óperunnar og hefur einnig fengið frábæra dóma fyrir flutning sinn á nýrri tónlist, til dæmis Kafka-Fragmente eftir Kurtág. Gissur Páll Gissurarson er Íslendingum einnig að góðu kunnur fyrir söng sinn og hefur margsinnis komið fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands á undanförnum árum.

Davíð Þór Jónsson píanóleikari leikur fyrir framan Eldborg frá kl. 19 og í hléi. Barir Hörpu verða ennfremur opnir og selja veitingar sem hæfa tilefninu.

Upphaflega átti Elmar Gilbertsson að koma fram á tónleikunum í stað Gissurar Páls. Hljómsveitarstjóri á tónleikunum er Kornilios Michailidis, staðarhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, sem hleypur í skarðið með skömmum fyrirvara fyrir Evu Ollikainen, aðalhljómsveitarstjóra, vegna forfalla.

Tónleikarnir áttu upphaflega að fara fram 6., 7. og 8. janúar 2022.

Sækja tónleikaskrá