EN

Vladimir Ashkenazy

Aðalheiðursstjórnandi

Vladimir Ashkenazy vakti fyrst alþjóðlega athygli þegar hann hlaut önnur verðlaun í Chopin-keppninni í Varsjá árið 1955, og síðan fyrstu verðlaun í Queen Elisabeth- keppninni í Brussel 1956 og Tsjajkovskíj-keppninni í Moskvu 1962. Ashkenazy á að baki glæsilegan feril í hljóðverinu og hefur hlotið sjö Grammy-verðlaun, m.a. sem besti einleikari með hljómsveit, fyrir bestu kammerhljóðritun og besta einleiksdisk. Samstarf Ashkenazy og Sinfóníuhljómsveitar Íslands spannar meira en hálfa öld. Hann kom fyrst fram með hljómsveitinni árið 1964 og stjórnaði henni í fyrsta sinn árið 1971. Hann hefur verið heiðursstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá árinu 2002. Ashkenazy gegndi lykilhlutverki í því að hvetja ráðamenn til byggingar tónlistarhúss í Reykjavík og stjórnaði opnunartónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hörpu vorið 2011. Forseti Íslands sæmdi Ashkenazy stórkrossi hinnar íslensku fálkaorðu í apríl 2018 fyrir framlag hans til íslensks tónlistar- og menningarlífs. Ashkenazy lagði tónsprotann endanlega á hilluna árið 2020.