EN

27. febrúar 2026

Ný útgáfa með verkum Daníels Bjarnasonar í flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands kemur út 27. febrúar

● Platan THE GROTESQUE & THE SUBLIME með verkum eftir tónskáldið og hljómsveitarstjórann Daníel Bjarnason kemur út hjá Sono Luminus 27. febrúar.

● Sinfóníuhljómsveit Íslands leikur undir stjórn Daníels og einleikarar eru píanóleikarinn Frank Dupree og slagverksleikarinn Vivi Vassileva.

Þann 27. febrúar gefur Sono Luminus út The Grotesque & The Sublime, sem inniheldur þrjú verk eftir Daníel Bjarnason, þar sem tónskáldið stjórnar Sinfóníuhljómsveit Íslands. Einleikarar eru píanóleikarinn Frank Dupree í konsertinum FEAST, og slagverksleikarinn Vivi Vassileva í konsertinum Inferno. Konsertarnir tveir ramma inn hljómsveitarverkið Fragile Hope.

Daníel Bjarnason er meðal fremstu tónlistarmanna samtímans og eftirsóttur um allan heim sem hljómsveitarstjóri, tónskáld og listrænn stjórnandi. Hann er listamaður í samstarfi hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands, eftir að hafa gegnt stöðum aðalgestastjórnanda og staðarlistamanns hjá hljómsvetinni.

The star performers … are the Iceland Symphony Orchestra, well directed by Daniel Bjarnason, whose understanding of the various styles, the underlying expressivity and sheer virtuosity of interpretation are wholly involving. (Gramophone um plötuna Concurrence)

 

 

FEAST
Fyrsta verkið á plötunni, píanókonsertinn FEAST var samið fyrir píanóleikarann Víking Heiðar Ólafsson. Verkið er byggt á smásögu Edgars Allan Poe, The Masque of the Red Death. FEAST var frumflutt af Víkingi Heiðari og Los Angeles fílharmóníunnar í Walt Disney Concert Hall árið 2022 undir stjórn Esa-Pekka Salonen. Síðar flutti Víkingur Heiðar konsertinn á tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn Daníels. Á plötunni er það hins vegar hinn þýski Frank Dupree sem leikur einleikspartinn með Sinfóníuhljómsveit Íslands.

Fragile Hope
Tónlist Jóhanns Jóhannssonar hefur haft djúp áhrif á nýja kynslóð íslenskra tónskálda, þar á meðal Daníel. Fragile Hope er samið til minningar um Jóhann. Daníel lýsir verkinu sem „hugleiðingu um þá fegurð sem Jóhann færði heiminum, bæði í ljósi og skugga.“ Í hápunkti verksins hljómar bein tilvísun í „Odi et Amo“, verk sem Jóhann samdi við leikritið Englabörn og var gefið út á tímamótaplötu hans árið 2002. Fragile Hope var pantað og frumflutt af Sinfóníuhljómsveit Gautaborgar árið 2024 undir stjórn Christian Karlsen. Sinfóníuhljómsveit Íslands flutti svo verkið á tónleikum í Hörpu árið 2025 undir stjórn Daníels.

Inferno
Inferno vísar til sögu Dantes um Gleðileikinn guðdómlega, en hér er frásögnin fremur táknræn en bein. Hljóðfæri einleikarans eru tiltölulega fá miðað við samtímaslagverkskonsert og voru valin úr safni austurríska slagverksleikarans Martin Grubinger, sem verkið var upphaflega samið fyrir. Daníel beinir sjónum að dökkum hljómblæ og velur hljóðfæri sem tákna ferðalag til undirheima. Inferno var frumflutt árið 2022 í Musiikkitalo í Helsinki af Martin Grubinger og Fílharmóníuhljómsveit Helsinki undir stjórn Tomas Djupsjöbacka. Verkið var endurskoðað árið 2024 og flutt á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands árið 2025 með Vivi Vassileva í einleikshlutverkinu undir stjórn tónskáldsins sjálfs.

Vivi Vassileva, slagverk
Frank Dupree, píanó

Daníel Bjarnason, hljómsveitarstjórn
Sinfóníuhljómsveit Íslands

Ragnheiður Jónsdóttir, tónmeistari
Daniel Shore, hljóðmeistari

NÁNAR UM LISTAMENNINA
Daníel Bjarnason er meðal fremstu tónlistarmanna samtímans og eftirsóttur um allan heim sem hljómsveitarstjóri, tónskáld og listrænn stjórnandi. Hann er listamaður í samstarfi hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands, eftir að hafa gegnt stöðum aðalgestastjórnanda og staðarlistamanns hjá hljómsveitinni.

Árið 2025 voru frumflutt tvö stór verk hans: lagaflokkurinn Hands on Me með Los Angeles fílharmóníunnar og fyrsta sinfóníska verkið í fullri lengd, I Want To Be Alive – Trilogy for Orchestra, með Sinfóníuhljómsveit Toronto undir stjórn Gustavo Gimeno. Verkið var flutt af Sinfóniuhljómsveit Íslands í Hörpu í september 2025 og er komið á dagskrá hjá sinfóníuhljómsveitum víða um heim.

Vivi Vassileva hefur verið lýst sem „listamanni sem hrífur áheyrendur sína og víkkar mörk slagverksins.“ Hún sameinar tæknilega fullkomnun, lipurð og kraft og er leiðandi í að endurskilgreina slagverkið sem hljóðfæri 21.aldarinnar.

Frank Dupree, handhafi International Classical Music- og Opus Klassik verðlaunanna, er einn fjölhæfasti píanóleikari og hljómsveitarstjóri sinnar kynslóðar. Hann hefur komið fram með virtum hljómsveitum víða um heim, jafnt sem einleikari og stjórnandi, og leiðir einnig djasshljómsveit sína, Frank Dupree Trio.

 

_33A5514
_33A4147_33A3287_33A4385_33A2388