EN

3. mars 2026

Kynningarefni Sinfóníunnar hlýtur sex verðlaun á FÍT keppninni

Kynningarefni Sinfóníunnar vann til sex verðlauna á FÍT keppninni í ár, þar á meðal hin eftirsóttu aðalverðlaun. Þá hlaut efnið gullverðlaun í flokkunum Hreyfigrafík, Myndlýsingaröð og Veggspjöld og silfurverðlaun í flokki Stakra myndlýsinga og Auglýsingaherferða.

Við erum stolt af þessum sinfóníska blómaheimi og óskum teyminu á bakvið hönnunina á samskipta- og hönnunarstofunni Aton og Sigurði Ými hreyfihönnuði innilega til hamingju með verðlaunin.