Evrópuferð Sinfóníunnar
Fimm tónleikar í Þýskalandi og Sviss 20.- 26. mars
Sinfóníuhljómsveit Íslands heldur í tónleikaferð um Evrópu í mars og leikur þar á fimm tónleikum undir stjórn Evu Ollikainen, aðalhljómsveitarstjóra sveitarinnar. Einleikari í ferðinni er Kian Soltani, einn virtasti sellóleikari samtímans, en hann er jafnframt staðarlistamaður hljómsveitarinnar.
Verkið ARCHORA eftir Önnu Þorvaldsdóttur verður flutt á öllum tónleikum ferðarinnar og önnur verk á efnisskrá eru sellókonsertar eftir Edward Elgar og Witold Lutosławski. Auk þess hljóma í ferðinni sinfónía nr. 2 og Dóttir norðursins eftir Jean Sibelius ásamt Eldfuglinum eftir Ígor Stravinskíj.
Tónleikasalirnir sem hljómsveitin leikur í eru með þeim glæsilegustu í Evrópu. Hér má sjá tónleikadagskrá hljómsveitarinnar í heild:
Genf – Victoria Hall Genf
20. mars kl. 19:30
Efnisskrá:Anna Þorvaldsdóttir ARCHORA
Edward Elgar Sellókonsert
Jean Sibelius Sinfónía nr. 2
Kaupa miða
Bern – Casino
21. mars kl. 19:30
Efnisskrá:
Anna Þorvaldsdóttir ARCHORA
Edward Elgar Sellókonsert
Jean Sibelius Sinfónía nr. 2
Kaupa miða
Zürich – Tonhalle
22. mars kl. 18:00
Efnisskrá:
Anna Þorvaldsdóttir ARCHORA
Edward Elgar Sellókonsert
Jean Sibelius Sinfónía nr. 2
Kaupa miða
Heidelberg – Stadhalle
24. mars kl. 19:30
Efnisskrá:
Anna Þorvaldsdóttir ARCHORA
Edward Elgar Sellókonsert
Jean Sibelius Sinfónía nr. 2
Kaupa miða
Hamborg – Elbphilharmonie
26. mars kl. 20:00
Efnisskrá:
Jean Sibelius Dóttir norðursins
Witold Lutosławski Sellókonsert
Anna Þorvaldsdóttir ARCHORA
Ígor Stravinskíj Svíta úr Eldfuglinum
UPPSELT
