Minningarorð um Þorkel Jóelsson hornleikara
Á stórum vinnustað er mikilvægt að í hópi starfsfólks finnist einstaklingar sem halda uppi góðum starfsanda og gleði og jafnvel, endrum og eins, hæfilegum skammti af kærulausu stuði. Þetta á líka við um sinfóníuhljómsveitir sem virka kannski á marga sem ansi formföst og alvarleg fyrirbæri. Þannig samstarfsmaður var Þorkell Jóelsson hornleikari árum og áratugum saman í hópi félaga sinna hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands. Auk þess að vera farsæll tónlistarmaður var Þorkell stór maður á ýmsa lund, af honum gustaði en félagar hans í þjóðarhljómsveitinni bera honum líka þá sögu að hann hafi verið hreinn og beinn, maður laus við vafninga og vesen – hjartahlýr húmoristi fram í fingurgóma sem auðvitað léku líka fimlega á franska hornið.
Þorkell kom fyrst til starfa hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands árið 1976, þá sem lausráðinn hljóðfæraleikari í horndeild en var síðar fastráðinn við hljómsveitina frá 1980 til 2016. Hann var því hluti af miklu uppbyggingarskeiði í sögu sveitarinnar og upplifði til dæmis umskiptin miklu með tilkomu Hörpu. Meðfram störfum sínum hjá SÍ lék Þorkell í hinum ýmsu tónlistarhópum í íslensku tónlistarlífi, auk þess sem hann starfaði um skeið í óperuhljómsveitinni í Gautaborg. Lífið snérist að miklu leyti um tónlist og á hverju vori stóð Túnfótur í Mosfellsdal hljóðfæraleikurum SÍ opinn og hjónin Keli og Diddú voru höfðingjar heim að sækja. Þá var oftar ekki farið í reiðtúr eða gönguferð sem endaði í garðinum þar sem sögur voru sagðar og hlátrasköll glumdu við. Á þessu menningarheimili eru hljóðfæri upp um alla veggi og trommusettið úti á gólfi sem Þorkeli þótti svo gaman að þenja í botn, rétt eins og hornið.
Viðskilnaður við góðan félaga, sem sýndi starfi hljómsveitarinnar mikinn áhuga eftir að hann hætti þar störfum, var alltof skyndilegur. Áfram lifir minningin um góðan dreng sem smitaði út frá sér gleði, hlýju og auðvitað tónlistinni sem er svo gott að eiga að félaga í lífinu.
Blessuð sé minning Þorkels Jóelssonar. Sinfóníuhljómsveit Íslands sendir fjölskyldu og ástvinum innilegar samúðarkveðjur og þakkar fyrir tónlistina og samfylgdina.
