Frábærar Viðtökur í Evrópuferð Sinfóníuhljómsveitar Íslands
Evrópuferð Sinfóníuhljómsveitar Íslands lauk á fimmtudagskvöld á glæsilegum tónleikum í hinu virta tónlistarhúsi Elbphilharmonie í Hamborg. Uppselt var á tónleikana, stemningin frábær og áhorfendur risu úr sætum og fögnuðu sveitinni. Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra voru viðstödd tónleikana.

Sinfóníuhljómsveitin flutti verkið ARCHORA eftir Önnu Þorvaldsdóttur sem er eitt af hennar þekktustu tónverkum. Staðarlistamaður hljómsveitarinnar, hinn heimsþekkti sellóleikari Kian Soltani, lék einleik í konsert eftir Witold Lutosławski og að lokum flutti hjómsveitin svítu úr Eldfuglinum eftir Ígor Stravinskíj undir stjórn Evu Ollikainen, aðalhljómsveitarstjóra SÍ.

Tónleikarnir fengu frábæra dóma í þýska dagblaðinu Hamburger Abendblatt. Þar sagði gagnrýnandinn Joachim Mischke m.a. þetta:
„Sterk frumraun: Ísland heimsækir Elbphilarmonie – þetta var virkilega frábært”.
„Þessir tónleikar hafa þegar skipað sér í hóp þeirra áhugaverðustu á árinu”.
Áður lék hljómsveitin á fernum velheppnuðum tónleikum á Evrópuferð sinni. Í Sviss var leikið í Victoria Hall í Genf, Casino í Bern, Tonhalle í Zürich og Stadthalle í Heidelberg á Heidelberger Frühling tónlistarhátíðinni. Alls staðar var leikið fyrir fullu húsi og haut sveitin mjög góðar viðtökur gesta.


Nú í sumarbyrjun eru 100 ár liðin frá heimsókn Fílharmóníuhljómsveitar Hamborgar til Reykjavíkur árið 1926. Heimsóknin markaði tímamót í menningarlífi landsmanna því þá fengu Íslendingar í fyrsta sinn að upplifa sinfóníska tónlist á tónleikum. Það var tónskáldið Jón Leifs sem lyft hafði þessu grettistaki, að koma um 40 tónlistarmönnum úr þýskri atvinnumannahljómsveit frá Hamborg í Þýskalandi hingað til lands. Hljómsveitin lék á fjórtán tónleikum undir stjórn Jóns Leifs.



- Eldri frétt
- Næsta frétt
