Tvær stöður almenns víóluleikara
Hæfnispróf - tvær stöður almenns víóluleikara.
Sinfóníuhljómsveit Íslands auglýsir til umsóknar tvær stöður almenns víóluleikara.
Hæfnispróf fer fram 31. ágúst 2026 og hefst kl. 13:00 í Hörpu.
Umsóknarfrestur er til 1. ágúst 2026.
Umsóknir
Ekki er þörf á að fylla út umsóknareyðublað, nægilegt er að sækja um með því að senda tölvupóst, ásamt ferilskrá og prófskírteinum, til mannauðsstjóra á tölvupóstfangið starf@sinfonia.is.
Einleiksverk
- Fyrsti kafli úr víólukonsert í D-dúr eftir F.A. Hoffmeister eða C. Stamitz í D-dúr með kadensu.
- Fyrsti kafli úr víólukonsert eftir B. Bartok eða W. Walton.
Hljómsveitarpartar
Hljómsveitarparta, þar sem hljómsveitarstaðir hafa verið tilgreindir sérstaklega, má nálgast hér.
Um starfið
Um er að ræða tvö 100% störf almenns víóluleikara í Sinfóníuhljómsveit Íslands en samtals eru ellefu víóluleikarar í deildinni. Gerð er krafa um háskólamenntun í hljóðfæraleik. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Sinfóníuhljómsveitar Íslands og fjármálaráðherra. Aðilar utan EES-svæðis þurfa að sækja um atvinnuleyfi sem háð er samþykki Félags íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) og Útlendingastofnunar.
Um hljómsveitina
Sinfóníuhljómsveit Íslands er þjóðarhljómsveit og var stofnuð árið 1950. Stöður fastráðinna hljóðfæraleikara eru 87. Hljómsveitin hefur um árabil verið í fremstu röð hljómsveita á Norðurlöndum og hefur fengið afbragðs dóma jafnt fyrir hljóðritanir sínar sem og tónleika heima og erlendis. Hljómsveitin heldur um 100 tónleika á hverju starfsári, m.a. áskriftartónleika með heimsþekktum stjórnendum og einleikurum. Við erum stolt af metnaðarfullu fræðslustarfi en árlega sækja þúsundir nemenda á öllum aldri hljómsveitina heim. Þá stendur hljómsveitin einnig fyrir margvíslegum fræðsluverkefnum til að leiða tónlistarnema inn í heim atvinnufólks. Eva Ollikainen er aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi hljómsveitarinnar en frá haustinu 2026 mun Barbara Hannigan taka við. Heimili Sinfóníuhljómsveitar Íslands er Harpa, tónlistar- og ráðstefnuhús.
Nánari upplýsingar er að finna á vefsvæði Sinfóníuhljómsveitar Íslands, www.sinfonia.is og hjá mannauðsstjóra, starf@sinfonia.is.
