EN

21. apríl 2026

Ný útgáfa með öllum sinfóníum Arvo Pärt


Út er komin ný plata, Arvo Pärt: Complete Symhonies, með fjórum sinfóníum eistneska tónskáldsins Arvos Pärt í flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands undir stjórn Eva Ollikainen aðalhljómsveitarstjóra.   
Arvo Pärt er eitt dáðasta tónskáld samtímans en í fyrra fagnaði hann níræðisafmæli. Af því tilefni flutti hljómsveitin allar fjórar sinfóníur hans á tónleikum og voru sinfóníurnar í framhaldi hljóðritaðar í Hörpu til útgáfu á vegum breska útgáfufyrirtækisins Chandos.

Sinfónía No. 3: III. Minim = 60


Sinfóníurnar voru samdar á 45 ára tímabili og eru því mjög ólíkar hvað stíl varðar  – fjögur sjálfstæð verk sem endurspegla sköpun Arvos  Pärt á ólíkum skeiðum á ferli hans.

Platan hefur þegar hlotið frábæra dóma og er nú plata vikunnar á Presto Music þar sem gagnrýnandinn David Smih segir meðal annars:

 

 ...Eva Ollikainen og íslensku hljóðfæraleikararnir sýna öll fjögur verkin í sínu besta ljósi, og það var ekki eitt einasta augnablik á plötunni þar sem athyglin dvínaði eða tónlistin missti tökin.

 Sjá umfjöllun hér