6 tilnefningar til fít- verðlaunanna
Kynningarefni Sinfóníuhljómsveitar Íslands er tilnefnt til FÍT-verðlaunanna í sex flokkum; Stakar myndlýsingar, Myndlýsingaröð, Veggspjöld, Auglýsingaherferðir, Menningar- og viðburðarmörkun og Hreyfigrafík.
Hlutverk verðlaunanna er að viðurkenna þau verk sem skara fram úr á Íslandi í grafískri hönnun og myndlýsingum.

Á síðasta ári var öll ásýnd Sinfóníunnar uppfærð með nýju hönnunarkerfi, letri og endurteiknuðu merki. Nýtt blómstrandi starfsár var kynnt til sögunnar á taktvissan hátt.

Teymið á bak við hönnunina eru Margrét Aðalheiður Þorgeirsdóttir, Sigurður Oddsson, Sigurður Ýmir Kristjánsson, Kolbeinn Jara Hamíðsson, Guðni Þór Ólafsson og Hólmfríður Benediktsdóttir. Við óskum þeim og Aton innilega til hamingju með tilnefningarnar og þökkum gott samstarf. Verðlaunaafhendingin fer fram í Grósku, föstudaginn 27. mars.
- Eldri frétt
- Næsta frétt
