tvær stöður almenns fiðluleikara í fyrstu fiðlu
Umsóknarfrestur er til 30. apríl 2026.
Sinfóníuhljómsveit Íslands auglýsir til umsóknar tvær stöður almenns fiðluleikara í fyrstu fiðlu.
Hæfnispróf fer fram 2. júní 2026 í Hörpu, Reykjavík.
Umsóknarfrestur er til 30. apríl 2026.
Umsóknir
Ekki er þörf á að fylla út umsóknareyðublað, nægilegt er að sækja um með því að senda tölvupóst, ásamt ferilskrá og prófskírteinum, til mannauðsstjóra á tölvupóstfangið starf@sinfonia.is.
Einleiksverk (tvö)
I. Fyrsti og annar kafli með kadensu úr einum af eftirtöldum konsertum:
W.A. Mozart – Fiðlukonsert nr. 3, nr. 4, eða nr. 5.
II. Fyrsti kafli með kadensu úr einum af eftirtöldum rómantískum konsertum:
Brahms, Tchaikovsky, Sibelius, Beethoven, eða Dvorák
Hljómsveitarpartar
Hljómsveitarparta, þar sem hljómsveitarstaðir hafa verið tilgreindir sérstaklega, má nálgast hér.
Um starfið
Um er að ræða tvenn 100% störf almenns fiðluleikara í fyrstu fiðlu en samtals eru 16,5 stöðugildi í deildinni. Gerð er krafa um háskólamenntun í hljóðfæraleik. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Sinfóníuhljómsveitar Íslands og fjármálaráðherra. Aðilar utan EES-svæðisins þurfa að sækja um atvinnuleyfi sem háð er samþykki Félags íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) og Útlendingastofnunar.
Um hljómsveitina
Sinfóníuhljómsveit Íslands er þjóðarhljómsveit og var stofnuð árið 1950. Stöður fastráðinna hljóðfæraleikara eru 87. Hljómsveitin hefur um árabil verið í fremstu röð hljómsveita á Norðurlöndum og hefur fengið afbragðs dóma jafnt fyrir hljóðritanir sínar sem og tónleika heima og erlendis. Hljómsveitin heldur um 100 tónleika á hverju starfsári, m.a. áskriftartónleika með heimsþekktum stjórnendum og einleikurum. Við erum stolt af metnaðarfullu fræðslustarfi en árlega sækja þúsundir nemenda á öllum aldri hljómsveitina heim. Þá stendur hljómsveitin einnig fyrir margvíslegum fræðsluverkefnum til að leiða tónlistarnema inn í heim atvinnufólks. Eva Ollikainen er aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi hljómsveitarinnar en frá haustinu 2026 mun Barbara Hannigan taka við. Heimili Sinfóníuhljómsveitar Íslands er Harpa, tónlistar- og ráðstefnuhús.
Nánari upplýsingar er að finna á vefsvæði Sinfóníuhljómsveitar Íslands, www.sinfonia.is og hjá mannauðsstjóra, starf@sinfonia.is.
