Kynningarupptökur á verkum íslenskra tónskálda
Dagana 2. og 3. febrúar sl. stóð Sinfóníuhljómsveit Íslands fyrir kynningarupptökum á nokkrum tónverkum íslenskra tónskálda sem hvorki hafa verið flutt á tónleikum né hljóðrituð áður. Tilgangur verkefnisins var að gefa tónskáldunum tækifæri til að heyra verk sín flutt en einnig að búa til efni sem hægt væri að senda á dóm- og verkefnavalsnefndir og til afmarkaðrar kynningar á verkunum. Kallað var eftir tónverkum á vef hljómsveitarinnar og með tilkynningu til félagsfólks Tónskáldafélags Íslands. Nokkur fjöldi tónverka bárust og valdi Eva Ollikainen, aðalstjórnandi og listrænn stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, fimm verkefni til upptöku.
Verkin sem voru hljóðrituð eru: Drifting for Orchestra eftir Fenri Ván Óskarsbur, þættir úr balletsvítunni Sölku eftir Úlfar Inga Haraldsson, Waves eftir Finn Karlsson, Sixty Silver Domes eftir Hauk Tómasson og fyrsti þáttur úr sinfóníu eftir Oliver Kentish. Hljómsveitarstjóri á upptökunum var Eva Ollikainen.
