Osmo Vänskä
Heiðursstjórnandi
Finnski hljómsveitarstjórinn Osmo Vänskä var aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands á árunum 1993–1996. Vänskä nýtur mikillar virðingar á alþjóðavettvangi og náði frábærum árangri með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hann tók við stöðu heiðursstjórnanda SÍ árið 2014 og hefur síðan að jafnaði stjórnað einum tónleikum á hverju starfsári. Vänskä var um árabil aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitarinnar í Lahti í Finnlandi og var aðalstjórnandi Minnesota-hljómsveitarinnar 2003 til 2022. Hann tók við stöðu aðalstjórnanda Fílharmóníusveitarinnar í Seúl í Suður-Kóreu árið 2020 og gegndi henni til 2023. Hljóðritanir hans hafa hlotið mikið lof og hefur hann hljóðritað með Sinfóníuhljómsveit Íslands nokkur hljómsveitarverk Jóns Leifs fyrir BIS-útgáfuna, meðal annars Sögusinfóníuna. Á starfsárinu mun Osmo stjórna á tónleikum þann 13. nóvember þar sem hljómsveitin flytur verk eftir Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur, Dmitríj Shostakovitsj og Sergej Prokofiev.