EN

Sinfóníuhljómsveit Íslands

Sinfóníuhljómsveit Íslands var stofnuð vorið 1950 og hefur um árabil verið í fremstu röð hljómsveita á Norðurlöndum. Hljómsveitin hefur fengið afbragðs dóma jafnt fyrir hljóðritanir sínar sem og tónleika heima og erlendis. Vorið 2011 varð Harpa, tónlistar- og ráðstefnuhús, heimili Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

Sinfóníuhljómsveit Íslands var stofnuð vorið 1950 og hefur um langt árabil verið í fremstu röð hljómsveita á Norðurlöndum enda fengið afbragðs dóma jafnt fyrir hljóðritanir sínar sem og tónleika heima og erlendis. Vorið 2011 varð Harpa, tónlistar- og ráðstefnuhús, heimili Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Hljómsveitin heldur um 100 tónleika á hverju starfsári, m.a. áskriftartónleika með heimsþekktum stjórnendum og einleikurum sem útvarpað er beint á Rás 1, fjölskyldu- og skólatónleika ásamt því að hljóðrita fyrir innlend og erlend útgáfufyrirtæki. Hljóðritanir hljómsveitarinnar hafa komið út m.a. á vegum Deutsche Grammophon, Sono Luminus, Chandos og BIS, og hafa hlotið fjölda viðurkenninga auk tilnefningar til Grammy-verðlauna fyrir besta hljómsveitardisk.

Kanadíski hljómsveitarstjórinn og sópransöngkonan Barbara Hannigan er aðalhljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi frá hausti 2026. Osmo Vänskä er heiðursstjórnandi hljómsveitarinnar og Vladimir Ashkenazy er aðalheiðursstjórnandi hennar. Anna Þorvaldsdóttir tók við stöðu staðartónskálds í byrjun árs 2018, en áður hafði Daníel Bjarnason gegnt starfinu til þriggja ára en nú gegna þau stöðu listamanna í samstarfi við hljómsveitina.

Hljómsveitin hefur komið fram á tónleikum við góðan orðstír m.a. í Bandaríkjunum, Þýskalandi, Frakklandi og Japan. Í nóvember 2019 hélt hljómsveitin í velheppnaða tónleikaferð til Þýskalands og Austurríkis með Daníel Bjarnasyni og Víkingi Heiðari Ólafssyni píanóleikara. Í febrúar 2020 hélt hljómsveitin í glæsilega tónleikaferðalag um Bretland ásamt hljómsveitarstjóranum Yan Pascal Tortelier og aftur árið 2023 undir stjórn Evu Ollikainen.