Hátíðardagskrá hljómsveitarinnar hefst að vanda með aðventutónleikum 3. desember í Eldborg. Þar mun sellistinn Geirþrúður Anna leika sellókonsert nr. 2 í D-dúr eftir Haydn og Mathew Halls stjórna hátíðlegri ballettónlist úr óperunni Idomeneo eftir Mozart. Jólatónleikar Sinfóníunnar í Litla tónsprotanum verða á sínum stað 12. og 13. desember þar sem hljómsveitin flytur sígildar jólaperlur og klassísk jólaævintýri á tónleikum fyrir alla fjölskylduna ásamt fjölda góðra gesta. Við fögnum svo nýju tónlistarári á hinum sívinsælu Vínartónleikum í upphafi árs 7.-9. janúar ásamt glæsilegum einsöngvurum og dönsurum!