| Dagsetning | Staðsetning | Verð | ||
|---|---|---|---|---|
| 3. des. 2026 » 19:30 » Fimmtudagur | Eldborg | Harpa | 3.100 - 11.500 kr. | ||
| Miðasala hefst 8. júní | ||||
-
Efnisskrá
Wolfgang Amadeus Mozart Ballettónlist úr óperunni Idomeneo
Joseph Haydn Sellókonsert nr. 2 í D-dúr
Marianna Martines Sinfónía í C-dúr
Wolfgang Amadeus Mozart Sinfónía nr. 36 „Linz“
-
Hljómsveitarstjóri
Mathew Halls
-
Einleikari
Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir selló
Það er fátt sem dregur betur fram eftirvæntingu aðventunnar en þokkafull og hlýleg tónlist klassíska tímabilsins. Úr óperu Mozarts um Idomeneo drottningu kemur þokkafull balletttónlist sem er vinsæl ein og sér í tónleikasölum heimsins, utan samhengis óperunnar. Geirþrúður Anna Guðmundsdóttiwr leikur einleik í léttleikandi D-dúr sellókonserti annars meistara klassíska tímans, Josephs Haydn, en konsertar hans fyrir hljóðfærið eru algjör kjarnaverk selló-bókmenntanna og ná alltaf að heilla áheyrendur.
Sjaldheyrð er hins vegar sinfónía eftir Mariönnu Martines sem yfirleitt er talin hafa verið fyrsta konan til að semja sinfóníu. Hún náði að rækta tónlistargáfur sínar þrátt fyrir að lifa í karllægum heimi austurrísks tónlistarlífs á átjándu öld. Hljómsveitarstjórinn Matthew Halls stjórnar að lokum hinni svokölluðu Linz sinfóníu Mozarts sem kennd er við borgina austurrísku en þar hafði tónskáldið stutt stopp árið 1783 og kom borginni rækilega á heimskort tónlistarsögunnar með þessari sólbjörtu sinfóníu.
