EN

Barnastund Sinfóníunnar

Ókeypis tónleikar fyrir yngstu hlustendurna

Tryggðu þér besta verðið með 20% afslætti með því að kaupa miða á ferna tónleika eða fleiri – Regnbogakort
Dagsetning Staðsetning Verð
11. mar. 2017 » 11:30 » Laugardagur Hörpuhorn | Harpa Aðgangur ókeypis
  • Efnisskrá

    Gamlir gullmolar og nýjar útsetningar ungra tónskálda verða í forgrunni ásamt léttu og skemmtilegu lögunum sem eiga sinn fasta sess á þessari sannkölluðu gæðastund.

  • Kynnir

    Hjördís Ástráðsdóttir

Í síðari Barnastund vetrarins fögnum við vorkomunni með fjölbreyttri tónlist. Gamlir gullmolar og nýjar útsetningar ungra tónskálda verða í forgrunni ásamt léttu og skemmtilegu lögunum sem eiga sinn fasta sess á þessari sannkölluðu gæðastund.

Barnastundir Sinfóníuhljómsveitarinnar hafa notið mikilla vinsælda. Tónlistin og lengd stundarinnar er sérstaklega sniðin að þeim hópi sem er of ungur til að sitja heila tónleika í Litla tónsprotanum. Barnastundin er hálftíma löng og fer fram í Hörpuhorni á 2. hæð, framan við Eldborg. Gott er að taka með sér púða til að sitja á. Ókeypis er á tónleikana og allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.

Sérstakur gestur er Maxímús Músíkús.