EN

Barnastund Sinfóníunnar

Tryggðu þér besta verðið með 20% afslætti með því að kaupa miða á ferna tónleika eða fleiri – Regnbogakort
Dagsetning Staðsetning Verð
3. mar. 2018 » 11:30 » Laugardagur Hörpuhorn | Harpa
  • Efnisskrá

    Gamlir gullmolar og nýjar útsetningar verða í forgrunni ásamt léttu og skemmtilegu lögunum sem eiga sinn fasta sess á þessari sannkölluðu gæðastund.

  • Kynnir

    Hjördís Ástráðsdóttir

Barnastundir Sinfóníuhljómsveitarinnar hafa notið mikilla vinsælda. Tónlistin og lengd stundarinnar er sérstaklega sniðin að þeim hópi sem er of ungur til að sitja heila tónleika í Litla tónsprotanum. Barnastundin er hálftíma löng og fer fram í Hörpuhorni á 2. hæð, framan við Eldborg. Gott er að taka með sér púða til að sitja á. 

Sérstakur gestur í Barnastundinni er leikkonan Þórunn Arna Kristjánsdóttir sem söng á Astrid Lindgren tónleikum hljómsveitarinnar síðastliðið haust.

Ókeypis er á tónleikana og allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.