EN

Drekinn innra með mér

Áskrift að tónleikaröð eða Regnbogakorti tryggir þér öruggt sæti á besta verðinu með 20% afslætti
Dagsetning Staðsetning Verð
12. maí 2018 » 14:00 » Laugardagur Eldborg | Harpa 2.400 - 2.800 kr.
  • Efnisskrá

    Elín Gunnlaugsdóttir og Laila Margrét Arnþórsdóttir Drekinn innra með mér

  • Hljómsveitarstjóri

    Bernharður Wilkinson

  • Sögumaður

    Þórunn Arna Kristjánsdóttir

  • Myndir

    Svafa Björg Einarsdóttir

  • Gestir

    Nemendur úr Listdansskóla Íslands

Drekinn innra með mér er óður um vináttu lítillar stúlku og dreka. Drekinn býr innra með stúlkunni, kennir henni að þekkja tilfinningar sínar og hvernig hún getur brugðist við þeim. Í þessu nýja og einstaka verki er hljómsveitin í hlutverki drekans en Þórunn Arna Kristjánsdóttir er sögumaður og fer með hlutverk stúlkunnar. Drekinn fær sérstakt stef sem birtist í ýmsum myndum og hríslast um hljómsveitina allt eftir því í hvers konar skapi hann er. 

Í upphafi er drekinn ósköp glaður en þegar líður á verkið brjótast fram ólíkar tilfinningar og hann ýmist dansar af gleði eða fuðrar upp í reiði. Inn við beinið er drekinn þó besta skinn og er það von höfundar að tónleikagestir finni sinn eigin dreka innra með sér á tónleikunum. Tónleikarnir eru túlkaðir á táknmáli af Eyrúnu Helgu Aradóttur og Ástbjörgu Rut Jónsdóttur.

Sækja tónleikaskrá