| Dagsetning | Staðsetning | Verð | ||
|---|---|---|---|---|
| 14. jan. 2027 » 19:30 » Fimmtudagur | Eldborg | Harpa | 3.100 - 11.500 kr. | ||
| Miðasala hefst 8. júní | ||||
-
Efnisskrá
Hjálmar H. Ragnarsson Djúpið – Sálumessa, frumflutningur
Brett Dean The Lost Art of Letter Writing fyrir fiðlu og hljómsveit
Antonín Dvořák Sinfónía nr. 9, „Frá nýja heiminum“
-
Hljómsveitarstjóri
Olari Elts
-
Einleikari
Isabelle Faust fiðla
Isabelle Faust hefur verið einn eftirsóttasti fiðluleikari heims um árabil. Hún er Íslendingum að góðu kunn eftir að hafa verið staðarlistamaður hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands á árunum 2010-11 og heimsótt okkur nokkrum sinnum eftir það. Á þessum tónleikum leikur hún margverðlaunaðan fiðlukonsert eftir eitt þekktasta núlifandi tónskáld Ástralíu, Brett Dean, þar sem viðfangsefnið er hin týnda list bréfaskrifta. Þá verður frumflutt tónverkið Djúpið – Sálumessa eftir Hjálmar H. Ragnarsson, en hann lést í mars 2026.
Í þessu tregafulla verki minnist hann vina og annarra sem gengið hafa af eigin hvötum yfir þröskuldinn sem aðskilur okkar verun og heim hins óþekkta. Djúpið – Sálumessa var síðasta hljómsveitarverkið sem Hjálmar lauk við. Tónleikunum lýkur svo með hinni sívinsælu sinfóníu Dvořáks, Frá nýja heiminum, sem snertir enn við áheyrendum með ó gleym an legum laglínum og hrífandi dramatík.
