Sinfóníuhljómsveitin opnar dyrnar að
lokaæfingum á tónleikadegi fyrir alla
áskriftartónleika í gulri og rauðri röð á
nýju starfsári. Hægt verður að kaupa
aðgang að æfingunum í miðasölu
Hörpu og á sinfonia.is. Lokaæfingin
hefst kl. 10:00 en aðgangur er takmarkaður við ákveðin sæti í Eldborg.
Þetta er tilvalið tækifæri til að dýpka
upplifun og skilning á tónlistinni sem
flutt verður á tónleikum um kvöldið.
Tekið skal fram að æfingarnar eru ekki tónleikar, heldur vinnuæfingar og dagskrá þeirra því ekki endilega í fullu samræmi við tónleika kvöldsins.
Aðgangur er 2.100 kr.