EN

Storgårds stjórnar Bruckner 2

Áskrift að tónleikaröð eða Regnbogakorti tryggir þér öruggt sæti á besta verðinu með 20% afslætti
Dagsetning Staðsetning Verð
19. nóv. 2026 » 19:30 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa 3.100 - 11.500 kr.
Miðasala hefst 8. júní
  • Efnisskrá

    Clara Schumann 3 rómönsur
    Clara Schumann Píanókonsert
    Anton Bruckner Sinfónía nr. 2

  • Hljómsveitarstjóri

    John Storgårds

  • Einleikari

    Alexandra Dariescu píanó

Á þessum tónleikum hljóma tvö tónverk í fyrsta sinn í flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands: Píanókonsert eftir Clöru Schumann og 2. sinfónía Antons Bruckner. Píanókonsertinn hljómar hér í einstakri túlkun Alexöndru Dariescu en konsertinn skrifaði Clara kornung, aðeins 14 ára gömul, sem Clara Wieck. Fáum árum síðar giftist hún tónskáldinu Robert Schumann og tók þá upp hið þekkta eftirnafn eiginmannsins. Önnur sinfónía Bruckners fékk snemma viðurnefnið „Sinfónía þagnanna“ vegna rausnar legrar notkunar Bruckners á þögnum til að skilja á milli formhluta innan verksins. Í síðari gerð verksins hafði Bruckner fækkað þögnunum umtalsvert og stytt en nafngiftin hélt sér engu að síður. Með þessari sinfóníu má segja að Bruckner hafi stigið stórt skref í að fullkomna tök sín á hinu sinfóníska formi.

Finnski hljómsveitarstjórinn og fiðluleikarinn John Storgårds stýrir Sinfóníu hljómsveit Íslands á tónleikununum en hann mun einnig leika einleik á fiðlu í þremur litlum rómönsum eftir Clöru í hljómsveitarútsetningu Bernards Rofe.