Jónas Tómasson: Sinfóníetta II
Jónas Tómasson stundaði tónlistarnám við Tónlistarskólann í Reykjavík, m.a. hjá þeim Jóni Þórarinssyni og Þorkatli Sigurbjörnssyni, en hélt síðan til framhaldsnáms í Amsterdam þar sem hann sótti tíma hjá Ton de Leeuw, Léon Orthel og Jos Kunst árin 1969–1972.
Jónas fluttist til Íslands árið 1973 og settist að á Ísafirði, þar sem hann hefur að mestu dvalið síðan. Þar hefur hann látið að sér kveða á ýmsum sviðum tónlistarlífsins, m.a. sem kennari í tónfræðigreinum og flautuleik, sem flautuleikari og kórstjóri og um áratuga skeið hafði hann umsjón með tónleikahaldi fyrir Tónlistarfélag Ísafjarðar. Tónsmíðarnar hafa þó ævinlega átt hug hans allan og síðustu árin hefur hann helgað sig þeim eingöngu.
Jónas er afar mikilvirkt tónskáld og eftir hann liggur fjöldi verka af ólíkum toga. Hann hefur samið fjölmörg hljómsveitarverk og konserta - m.a. fyrir orgel, víólu, píanó, tvö píanó og sinfóníuhljómsveit. Kórverk skipa stóran sess í tónverkasafni Jónasar, einnig hefur hann samið fjöldann allan af kammerverkum fyrir ólíkar og oft frumlegar samsetningar hljóðfæra. Loks hefur Jónas samið fjölda einleiks- og einsöngsverka fyrir ýmis hljóðfæri, oft að beiðni einstakra tónlistarmanna.
Verk Jónasar hafa verið flutt af mörgum fremstu tónlistarmönnum hér á landi, t.d. hefur Sinfóníuhljómsveit Íslands margsinnis flutt sinfónísk verk hans og konserta. Kammersveit Reykjavíkur, Caput-tónlistarhópurinn, kammerhópurinn Ýmir, Mótettukór Hallgrímskirkju og fjölmargir aðrir minni tónlistarhópar hafa haft verk hans á efnisskránni og flutt þau víða um heim. Upptökur hafa verið gerðar af fjölda verka Jónasar og hafa mörg þeirra einnig komið út á geisladiskum.
Um verkið sem flutt verður í kvöld segir Jónas:
„Á einni af mörgum ferðum mínum um Mývatnssveit og Laxárdal datt mér Sinfóníetta II í hug. Reyndar í miðjum Laxárdal, sumarið 2003.“
Verkið tileinkar Jónas eiginkonu sinni Sigríði Ragnarsdóttur og ber það undirtitilinn (Laxárdalur - til Siggu).