EN

Veronique Vaka: Rift

Veronique Vaka, sellóleikari og tónskáld, er fædd í Kanada en búsett á Íslandi. Hún lagði stund á klassískan sellóleik við Vincent-d'Indy og hélt svo námi sínu áfram í tónsmíðum raftónlistar við háskólann í Montreal. Veronique er þessa stundina í meistaranámi í tónsmíðum við Listaháskóla Íslands undir leiðsögn Páls Ragnars Pálssonar og Þuríðar Jónsdóttur. Veronique hóf að nálgast tónlistarsköpun sína á sértækari hátt þegar hún hafðist handa við verkefnið sitt: From Landscape to Music Notation. Tilgangur þessa verkefnis er að skapa nokkurs konar ljóðrænt samband milli þess sem hún sér, heyrir og finnur fyrir í óspilltri náttúrunni, og sameina í tónverk. Tónsmíðastíl hennar getur verið lýst sem lífrænum, sjálfsprottnum, með áherslu á smáatriði eins og í takti og hrynjandi, áferð og tónblæ.

Veronique Vaka hefur samið verk fyrir Sinfóníuhljómsveit áhugamanna, Ensemble paramirabo, Duo Harpverk, Ensemble Synaethesis, Ensemble Adapter, Caput Ensemble og Sinfóníuhljómsveit Íslands sem hluti af verkefninu YRKJA III.