| Dagsetning | Staðsetning | Verð |
|---|---|---|
| 8. jan. 2026 » 19:30 » Fimmtudagur | Eldborg | Harpa | 3.990 - 12.200 kr. |
| 9. jan. 2026 » 19:30 » Föstudagur | Eldborg | Harpa | 3.990 - 12.200 kr. |
| 10. jan. 2026 » 16:00 » Laugardagur | Eldborg | Harpa | 3.990 - 12.200 kr. |
| 10. jan. 2026 » 19:30 » Laugardagur | Eldborg | Harpa | 3.990 - 12.200 kr. |
-
Hljómsveitarstjóri
Sascha Goetzel
-
Einsöngvarar
Eyrún Unnarsdóttir
Sveinn Dúa Hjörleifsson
-
Dansarar
Þorkell Jónsson
Denise Margrét Yaghi
Gylfi Már Hrafnsson
María Tinna Hauksdóttir
Erik Óli Jónsson
Erla Sól Jónasdóttir
Hinir sívinsælu Vínartónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands eru sannkölluð nýársveisla og sú létta og skemmtilega tónlist sem þar hljómar gefur tóninn fyrir nýtt ár.
Á efnisskránni er að vanda sígild Vínartónlist sem kemur öllum í gott skap – valsar, polkar og galopp – en meðal fastra punkta á tónleikunum ár eftir ár eru Keisaravalsinn og Dónárvalsinn eftir Jóhann Strauss yngri. Þá hljóma aríur og dúettar úr vinsælum óperettum í flutningi tveggja framúrskarandi einsöngvara.
Sópransöngkonan Eyrún Unnarsdóttir hefur fengið mikið lof fyrir bjarta og tjáningarríka túlkun og hefur hlotið verðlaun í alþjóðlegum söngkeppnum. Sveinn Dúa er íslenskum tónleikagestum vel kunnugur og hefur oft komið fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands, m.a. í 9. sinfóníu Beethovens við opnun Hörpu 2011.
Auk þeirra koma fram samkvæmisdansarar sem stíga létt og glæsileg spor í Eldborg undir dynjandi tónlistinni.
Vínartónleikarnir eru ævinlega fullkominn upptaktur að nýju ári.
Alexandra Kjeld og Arngerður María Árnadóttir leika ljúfa tóna í framhúsi Hörpu fyrir tónleika og í hléi.



