EN

Tónleikar & miðasala

desember 2018

Jólatónleikar Sinfóníunnar 15. des. 14:00 Laugardagur Eldborg | Harpa

Jólatónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands hafa um árabil verið hluti af hinum hefðbundna jólaundirbúningi hjá mörgum tónleikagestum. Á þessum hátíðlegu fjölskyldutónleikum verður skyggnst inn í íslensku baðstofuna þar sem gömlu jólasveinarnir og jólakötturinn hafa hreiðrað um sig. Einnig verður gullfalleg jólatónlist Jórunnar Viðar í forgrunni en tónskáldið hefði fagnað 100 ára afmæli á þessu ári.

Nemendur úr Listdansskóla Íslands túlka Jólakött Ingibjargar Þorbergs og Jólaóð Gunnars Þórðarsonar og Stúlknakór Reykjavíkur og Litlu sprotarnir flytja sígilda jólasöngva ásamt Valgerði Guðnadóttur og Kolbrúnu Völkudóttur. Ungir lúðraþeytarar koma fram með hljómsveitinni og Bjöllukór Tónlistarskóla Reykjanesbæjar hringir inn jólin og flytur jólalög fyrir og eftir tónleikana.

Kynnir er trúðurinn Barbara og hljómsveitarstjóri er Bernharður Wilkinson. Tónleikarnir eru túlkaðir á táknmáli. 

  • Efnisskrá

    Ingibjörg Þorbergs Jólakötturinn
    Jórunn Viðar Það á að gefa börnum brauð og Jól
    Guðni Franzson Jólin koma
    Gunnar Þórðarson Óður til jólanna
    Fleiri sígildir jólasöngvar

  • Hljómsveitarstjóri

    Bernharður Wilkinson

  • Flytjendur

    Valgerður Guðnadóttir
    Kolbrún Völkudóttir

Jólatónleikar Sinfóníunnar 15. des. 16:00 Laugardagur Eldborg | Harpa