Skálmöld og Sinfó
Tónleikar Skálmaldar og Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hörpu í nóvember 2013 vöktu verðskuldaða athygli. Gagnrýnandi Morgunblaðsins kallaði þá „málmmessu áratugarins“ og komust færri að en vildu á þrenna tónleika. Upptaka frá tónleikum náði platínusölu og vegna fjölda áskorana er nú komið að því að Skálmöld og Sinfónían taki höndum saman á ný. Á tónleikum verður töluvert af nýju efni í bland við lög sem aðdáendur sveitarinnar þekkja í þaula.
Vegna gríðarlegra vinsælda og fjölda áskorana hefur verið ákveðið að bæta við aukatónleikum þann 22. ágúst kl. 20:00. Miðarnir fara í sölu 7. júní kl. 12:00.
-
Um tónleikana
Tónleikar Skálmaldar og Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hörpu í nóvember 2013 vöktu verðskuldaða athygli. Nú leiða þessar hljómsveitir saman hesta sína á nýjan leik með nýtt efni í farteskinu.
-
Hljómsveitarstjóri
-
Kórar
Karlakór Reykjavíkur
Kammerkórinn Hymnodia
Barnakór Kársnesskóla