EN

Aflýst: Aðventutónleikar Sinfóníunnar

Athugið að tónleikunum hefur verið aflýst vegna samkomutakmarkanna

Dagsetning Staðsetning Verð
3. des. 2020 » 20:00 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa Aflýst
  • Efnisskrá

    Antonio Vivaldi Konsert fyrir tvær fiðlur í a-moll
    Giovanni Bottesini Konsert fyrir kontrabassa nr. 2
    Efnisskrá kynnt nánar síðar

  • Hljómsveitarstjóri

    Tilkynnt síðar

  • Einleikarar

    Vera Panitch fiðla
    Páll Palomares fiðla
    Jacek Karwan kontrabassi

Í ljósi samkomutakmarkanna vegna útbreiðslu kórónuveirunnar hefur Sinfóníuhljómsveitar Íslands ákveðið að aflýsa tónleikunum. Miðahafar geta nýtt upphæðina á aðra tónleika hljómsveitarinnar eða fengið miðana endurgreidda í miðasölu Hörpu.

Aðventutónleikar Sinfóníunnar eru ávallt sérstakt gleðiefni, því þá hljómar hátíðleg tónlist eftir meistara barokksins frá 17. og 18. öld sem ekki eru daglega á efnisskrám sinfóníuhljómsveita. Á þessari jólalegu efnisskrá verður meðal annars konsert fyrir tvær fiðlur eftir Vivaldi, í flutningi hjónanna Veru Panitch og Páls Palomares, en þau spiluðu sig inn í hjörtu landsmanna fyrr á árinu ásamt ungum tvíburum sínum. 

Einnig mun Jacek Karwan, kontrabassaleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands, leika glæsilegan konsert eftir ítalska tónskáldið Giovanni Bottesini. Nánari efnisskrá verður kynnt síðar en meðal annars verða á efnisskránni verk eftir barokkmeistarana Händel og Bach.

Í ljósi hertra samkomutakmarkanna er miðaframboð á tónleikana takmarkað við 100 manns í hvert sóttvarnarhólf. Í það minnsta eitt autt sæti er á milli allra pantana til að tryggja nálægðarmörk milli gesta. Athugið að samkvæmt sóttvarnarlögum ber gestum skylda að vera með grímu á tónleikunum. Við biðjum tónleikagesti að gæta vel að sóttvarnarreglum og kynna sér leiðbeiningar til tónleikagesta áður en mætt er á tónleikana. Stöndum saman, við erum öll almannavarnir.