EN

Ari Eldjárn og Sinfó

Uppistand með einum vinsælasta grínista landsins

Tryggðu þér besta verðið með 20% afslætti með því að kaupa miða á ferna tónleika eða fleiri – Regnbogakort
Dagsetning Staðsetning Verð
27. sep. 2018 » 19:30 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa 2.500 - 6.500 kr.
28. sep. 2018 » 19:30 » Föstudagur Eldborg | Harpa Uppselt!
29. sep. 2018 » 17:00 » Laugardagur Eldborg | Harpa Örfá sæti laus
Uppselt

Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Ara Eldjárns á síðasta starfsári nutu geysilegra vinsælda. Uppselt var á þrenna tónleika í Eldborg og eftirspurn eftir miðum var slík að ákveðið var að endurtaka tónleikana í september 2018. Ari er ósvikinn gleðigjafi og hér fer hann með gamanmál sem tengjast hljómsveitinni en kynnir einnig vinsæl hljómsveitarverk sem margir þekkja úr öðru samhengi en af sinfóníutónleikum, til dæmis úr vinsælum kvikmyndum síðustu áratuga. 

Hér hljóma meðal annars fyrsti kaflinn úr fimmtu sinfóníu Beethovens, Dofrakonungs-kaflinn úr Pétri Gaut eftir Grieg (sem var notað með eftirminnilegum hætti í myndinni The Social Network) og Valkyrjureið Wagners sem gerði atriði úr Apocalypse Now ógleymanlegt. Einnig hljóma þekkt stef úr kvikmyndunum Star Wars og Superman úr smiðju John Williams. Á þessum uppistandstónleikum fléttast saman óborganleg kímnigáfa og meistaraverk tónlistarinnar svo að úr verður sannkölluð eðalskemmtun fyrir alla fjölskylduna. 

Sækja tónleikaskrá