EN

Ari Eldjárn og Sinfó: Uppistand!

Tryggðu þér besta verðið með 20% afslætti með því að kaupa miða á ferna tónleika eða fleiri – Regnbogakort
Dagsetning Staðsetning Verð
9. feb. 2017 » 19:30 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa Uppselt
10. feb. 2017 » 19:30 » Föstudagur Eldborg | Harpa Uppselt
11. feb. 2017 » 16:00 » Laugardagur Eldborg | Harpa 2.500 - 4.500 kr.

Ari Eldjárn er einn fyndnasti Íslendingur sem uppi hefur verið og erfitt getur verið að hemja brosvöðvana þegar hann fer á flug. Nú stígur hann á stokk með Sinfóníuhljómsveit Íslands, segir gamanmál sem tengjast hljómsveitinni en kynnir einnig vinsæl hljómsveitarverk sem margir þekkja úr öðru samhengi en af sinfóníutónleikum, til dæmis úr vinsælum kvikmyndum síðustu áratuga.

Hér hljóma meðal annars Allegretto-kaflinn úr sjöundu sinfóníu Beethovens (sem margir þekkja úr myndinni The King's Speech), Dofrakonungs-kaflinn úr Pétri Gaut eftir Grieg (sem notað var með eftirminnilegum hætti í myndinni The Social Network), og Valkyrjureið Wagners, sem gerði atriði úr Apocalypse Now ógleymanlegt. Á þessum uppistandstónleikum fléttast húmor og meistaraverk tónlistarinnar saman svo að úr verður sannkölluð eðalskemmtun fyrir alla fjölskylduna. 

Sækja tónleikaskrá