EN

Föstudagsröðin

Ástir og örlög

Áskrift að tónleikaröð eða Regnbogakorti tryggir þér öruggt sæti á besta verðinu með 20% afslætti
Dagsetning Staðsetning Verð
9. mar. 2018 » 18:00 » Föstudagur Norðurljós | Harpa 2.900 kr.
  • Efnisskrá

    Robert Schumann Þrír söngvar úr Myrthen
    Robert Schumann Geistervariationen
    Ludwig van Beethoven Sinfónía nr. 5, Örlagasinfónían

  • Hljómsveitarstjóri

    Yan Pascal Tortelier

  • Einsöngvari

    Þóra Einarsdóttir

  • Píanóleikarar

    Anna Guðný Guðmundsdóttir
    Guðrún Dalía Salómonsdóttir

Fátt hefur verið tónskáldum þvílíkur innblástur gegnum aldirnar sem ástir þeirra og örlög. Á þessum tónleikum hljóma verk sem sprottin eru beint úr lífsreynslu tveggja tónskálda. Robert Schumann hreifst ungur af Clöru Wieck, dóttur píanókennara síns, og þegar þau fengu loks að ganga í hjónaband var sem flóðgátt hefði opnast í tónsköpun hans. Meðal ótal sönglaga sem hann samdi um þetta leyti var ljóðaflokkurinn Myrthen sem hefur að geyma ástarsöngva af ýmsum toga. Fjórtán árum síðar var Schumann við það að missa vitið, og síðasta píanóverk hans er tilbrigði um stef sem hann sagði að englar hefðu sungið fyrir sig. 

Í örvæntingu sinni fleygði Schumann sér í ána Rín en var dreginn á land. Næsta dag lauk hann við píanótilbrigðin sem síðan hafa verið kölluð „Andatilbrigðin“.

Þegar Beethoven samdi Örlagasinfóníu sína, árið 1808, ágerðist heyrnarleysi hans stöðugt og hann vissi að dagar hans sem fremsti píanóleikari Vínarborgar væru senn taldir. Hann tók örlögum sínum af æðruleysi en bauð þeim líka birginn. Vini sínum skrifaði hann: „Ég mun taka örlögin kverkataki, þeim mun ekki takast að knésetja mig!“ Örlagasinfónían er mögnuð tónsmíð, glíma í tónum sem lýkur með fullnaðarsigri. Um tónsprotann heldur aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitarinnar, Yan Pascal Tortelier. 

Tónleikar Föstudagsraðarinnar eru um klukkustundarlangir þar sem teflt er saman hljómsveitarverki og einleiksverki. Tilvalinn endapunktur á góðri vinnuviku eða frábær upptaktur að skemmtilegu föstudagskvöldi. 

Kynnar eru Halla Oddný og Guðni Tómasson.