EN

Dalene leikur Adés

Áskrift að tónleikaröð eða Regnbogakorti tryggir þér öruggt sæti á besta verðinu með 20% afslætti
Dagsetning Staðsetning Verð
15. okt. 2026 » 19:30 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa 3.100 - 11.500 kr.
Miðasala hefst 8. júní
  • Efnisskrá

    Jean Sibelius Ránardætur
    Thomas Adés Fiðlukonsert, Concentric Paths
    Benjamin Britten Passacaglia úr óperunni Peter Grimes
    Jean Sibelius Sinfónía nr. 7

  • Hljómsveitarstjóri

    Daníel Bjarnason

  • Einleikari

    Johan Dalene fiðla

Hér kemur tónlistin til okkar úr djúpinu en tvö heillandi tónverk eftir Jean Sibelius ramma inn tónleikana. Í upphafi rísa úr hafi Ránardætur í samnefndu tónaljóði finnska tónskáldsins.  Þar dregur Sibelius upp listilega mynd af leik gyðjanna og hafinu, þessu mikla afli sem eina stundina virðist alsaklaust en rýkur upp þá næstu með ógnarafli. Undir lok tónleikanna hljómar hin stórkostlega sjöunda sinfónía tónskáldsins sem er, eins og tónaljóðið, aðeins í einum kafla. Sinfónían þykir bera frumleika tónskáldsins fagurt vitni og er af mörgum talin eitt af stórkostlegustu tónverkum Sibeliusar. Sænska ungstirnið Johan Dalene leikur einleik í áhrifamiklum fiðlukonserti eftir Thomas Adès. Stjarna hans hefur risið hratt frá því að hann lék síðast einleik með hljómsveitinni. Konsert Adès, eins þekktasta tónskálds samtímans, er í senn margbrotinn og hárnákvæmur, ljóðrænn og tilfinningaþrunginn. Annað breskt tónskáld, Benjamin Britten, á einnig verk á tónleikunum; millispil úr óperunni Peter Grimes þar sem hafið mótar líf persónanna, líkt og það gerir hjá okkur á eyjunni í norðri.