EN

Klassíkin okkar

Tryggðu þér besta verðið með 20% afslætti með því að kaupa miða á ferna tónleika eða fleiri – Regnbogakort
Dagsetning Staðsetning Verð
28. ágú. 2026 » 20:00 » Föstudagur Eldborg | Harpa 3.100 - 8.700 kr.
Miðasala hefst 8. júní
  • Efnisskrá

    Verk eftir Mozart, Puccini, Bach, Sibelius, Páll Ísólfsson og Tchaikovsky

  • Hljómsveitarstjóri

    Daníel Bjarnason

  • Flytjendur

    Ásta Dóra Finnsdóttir píanó
    Álfheiður Erla Guðmundsdóttir sópran
    Bryndís Guðjónsdóttir sópran
    Elmar Gilbertsson tenór
    Unnsteinn Manuel Stefánsson söngur
    Karlakór Reykjavíkur

Klassíkin okkar hefur fyrir löngu fest sig í sessi sem ómissandi upptaktur að nýju starfsári Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Að venju kennir ýmissa grasa á fjölbreyttri efnisskránni sem gleðja mun hug og hjarta á þessu síðsumarkvöldi: Leiftrandi fjörug hljómsveitartónlist og tregafullir söngvar í bland við ástríðufullar aríur, hetjusöngva og kraftmikinn píanóleik. 

Stjörnur kvöldsins eiga það margar sameiginlegt að prýða tónleikadagskrá komandi starfsárs og gefa hér tónleikagestum tækifæri til að njóta hæfileika sinna og útgeislunar. Það er Daníel Bjarnason sem heldur um tónsprotann og leiðir Sinfóníuhljómsveit Íslands á þessum skemmtilegu tónleikum sem verða að auki í beinni útsendingu á RÚV.