| Dagsetning | Staðsetning | Verð | ||
|---|---|---|---|---|
| 22. okt. 2026 » 19:30 » Fimmtudagur | Eldborg | Harpa | 3.100 - 11.500 kr. | ||
| Miðasala hefst 8. júní | ||||
-
Efnisskrá
Franz Schubert Sinfónía nr. 8 „Ófullgerða sinfónían“
Alexander Zemilinsky Lýrísk sinfónía
-
Hljómsveitarstjóri
Ingo Metzmacher
-
Einsöngvarar
Bryndís Guðjónsdóttir sópran
Ólafur Kjartan Sigurðarson barítón
Barítónsöngvarinn Ólafur Kjartan Sigurðarson hefur notið mikillar hylli á undanförnum árum og er orðinn fastagestur á þekktustu óperusviðum heims. Á þessum tónleikum syngur hann ásamt sópransöngkonunni Bryndísi Guðjónsdóttur hina stórbrotnu Lýrísku sinfóníu eftir Alexander Zemlinsky. Þetta er í fyrsta sinn sem þetta síðrómantíska verk hljómar hérlendis en tónskáldið samdi það undir sterkum áhrifum frá Mahler og tekst þar á við eftirsjá og þrá með frumlegum og áhrifaríkum hætti.
Tónlistarfræðingar eru ekki á einu máli hvers vegna Franz Schubert lauk ekki að fullu við 8. sinfóníu sína, en hann lauk aðeins tveimur þáttum af fjórum. Þrátt fyrir það lætur sinfónían engan ósnortinn með sínum ógleymanlegu laglínum. Það er hinn heimsþekkti hljómsveitarstjóri, Ingo Metzmacher sem stjórnar og er þetta í fyrsta sinn sem hann kemur fram með hljómsveitinni.
