| Dagsetning | Staðsetning | Verð | ||
|---|---|---|---|---|
| 24. apr. 2026 » 19:30 » Föstudagur | Eldborg | Harpa | 2.990 - 5.900 kr. | ||
| Hlusta | ||||
-
Efnisskrá
Jacques Ibert Flautukonsert
Alexander Glazunov Fiðlukonsert í a-moll, Op. 82
W.A. Mozart Vorrei spiegarvi, oh dio
Giacomo Puccini Quando m'en vo úr La Bohéme
Franz Lehár Einer wird kommen úr Der Zarewitsch
Leonard Bernstein Glitter and be Gay úr Candide
George Gershwin Píanókonsert í F-dúr
-
Hljómsveitarstjóri
Baldur Brönnimann
-
Einleikarar
Halldóra Ósk Helgadóttir, söngur
Lilja Hákonardóttir, flauta
Matthildur Traustadóttir, fiðla
Mariann Rähni, píanó
Á þessum tónleikum, sem bera yfirskriftina Ungir einleikarar, kynnumst við nokkrum af björtustu framtíðarstjörnum íslenskrar tónlistar. Tónleikarnir eru sannkölluð uppskeruhátíð, þar sem sigurvegarar í einleikara- og einsöngskeppni Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Listaháskóla Íslands stíga á svið með hljómsveitinni. Andrúmsloftið á þessum tónleikum er jafnan einstakt og eftirvæntingin mikil þegar ungu tónlistarfólki gefst færi á að koma fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands í fyrsta sinn, á glæsilegasta tónleikasviði landsins í Eldborg.
Hljómsveitarstjóri að þessu sinni er hinn svissneski Baldur Brönnimann sem er aðalstjórnandi og listrænn stjórnandi Konunglegu fílharmóníusveitarinnar og tónlistarháskólans í Galisíu á Spáni. Hann leggur mikla áherslu á fræðslustarf og vinnur reglulega með ungu fólki; heldur meistaranámskeið og vinnur með æskulýðshljómsveitum víða um heim.
Nemendur og fólk undir 25 ára aldri getur keypt miða á skólakortsverði, 2.490 kr. í miðasölu Hörpu.
*Tónleikarnir eru u.þ.b. tvær klukkustundir með hléi.





