| Dagsetning | Staðsetning | Verð | ||
|---|---|---|---|---|
| 8. okt. 2026 » 19:30 » Fimmtudagur | Eldborg | Harpa | 3.100 - 11.500 kr. | ||
| Miðasala hefst 8. júní | ||||
-
Efnisskrá
Sergej Prokofíev Fiðlukonsert nr. 1
Ludwig van Beethoven Sinfónía nr. 9
-
Hljómsveitarstjóri
Edward Gardner
-
Einleikari
Alina Ibragimova fiðla
-
Einsöngvarar
Harpa Ósk Björnsdóttir sópran
Hanna Dóra Sturludóttir messó
Stuart Skelton tenór
Andri Björn Róbertsson barítón
-
Kórar
Söngsveitin Fílharmónía
Kór Langholtskirkju
Edward Gardner telst tvímælalaust til þekktustu hljómsveitarstjóra heims um þessar mundir. Hann gegnir starfi aðalstjórnanda Fílharmóníusveitar Lundúna og er tónlistarstjóri við Norsku óperuna og ballettinn auk þess sem hann er eftirsóttur gestastjórnandi hjá hljómsveitum og stærstu óperuhúsum heims. Fiðluleikarinn Alina Ibragimova hefur skipað sér á bekk með fremstu fiðluleikurum sinnar kynslóðar og kemur reglulega fram sem einleikari með hljómsveitum víða um heim en einnig sem flytjandi kammertónlistar. Hér færa þessir frábæru listamenn okkur hinn gullfallega fiðlukonsert nr. 1 eftir Sergej Prokofíev. Konsertinn ber höfundi sínum fagurt vitni með lýrískum seiðandi laglínum í bland við kraftmikil átök einleiksfiðlunnar við hljómsveitina. Níunda sinfónía Beethovens verður engu að síður þungamiðja þessara tónleika í flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands með fulltingi einsöngvara og kóra í fremstu röð. Sinfónían er stórkostlegt ákall til mennsku og bræðralags, boðskapur sem á jafn brýnt erindi við nútímann og hún hafði í byrjun 19. aldar.
