EN

Anna & Strauss

Áskrift að tónleikaröð eða Regnbogakorti tryggir þér öruggt sæti á besta verðinu með 20% afslætti
Dagsetning Staðsetning Verð
4. sep. 2025 » 19:30 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa 2.990 - 10.100 kr.
Kaupa miða
  • Efnisskrá

    Richard Strauss Þættir úr ballettinum Schlagobers
    Anna Þorvaldsdóttir Before we fall (sellókonsert) - Íslandsfrumflutningur
    Richard Strauss Svíta úr Elektru (úts. Manfred Honeck og Thomas Ille)

  • Hljómsveitarstjóri

    Eva Ollikainen

  • Einleikari

    Johannes Moser

Frumflutningur á nýjum sellókonserti eftir Önnu Þorvaldsdóttur telst stórviðburður í heimi samtímatónlistarinnar. Anna er
eitt eftirsóttasta tónskáld dagsins í dag og verk hennar eru flutt reglulega af fremstu hljómsveitum heims. Sellóleikarinn Johannes Moser frumflytur verkið með Sinfóníuhljómsveit San Francisco og kemur í kjölfarið til Íslands. Moser er margverðlaunaður fyrir list sína og hefur komið fram sem einleikari með öllum helstu sinfóníuhljómsveitum austan hafs og vestan.

Skrif Richards Strauss fyrir hljómsveit eru einkar litrík og metnaðarfull. Fá tónskáld eru honum fremri í að nýta sér möguleikana sem búa í hljóðheimi sinfóníuhljómsveitar. Elektra er ein af þekktustu óperum Strauss og í þessari hljómsveitarsvítu úr verkinu birtist vel sá frumkraftur og dramatíska spenna sem upplifa má í sjálfri óperunni. Enn fremur hljómar í upphafi tónleikanna tónlist úr eina balletti Richards Strauss sem ber það óvenjulega heiti Schlagobers, eða „Þeyttur rjómi“. Efniviðurinn er heimsókn nokkurra barna í kræsilegt bakarí í Vínarborg þar sem sætabrauð og kökur vakna til lífsins – og þetta má greina í safaríkri tónlistinni.