Dagsetning | Staðsetning | Verð | ||
---|---|---|---|---|
29. ágú. 2025 » 20:00 » Föstudagur | Eldborg | Harpa | 2.990 - 7.900 kr. | ||
Horfa |
-
Efnisskrá
Leonard Bernstein Candide, forleikur
Magnús Eiríksson Einhvers staðar einhvern tímann aftur
Sergej Rakhmanínov Vókalísa
Páll Ísólfsson Í dag skein sól
Leonard Bernstein Glitter and Be Gay úr Candide
Rebekka Blöndal Lítið ljóð
Georg Friedrich Händel Zadok the Priest
Mikhail Glinka Rúslan og Ljúdmíla, forleikur
Karl Ottó Runólfsson Í fjarlægð
Emmerich Kálmán Ég er kominn heim (úr óperettunni Fjólan frá Montmartre)
Árni Thorsteinsson Nótt
Giuseppe Verdi Steðjakórinn úr Il Trovatore
Franz Lehár Varir þegja úr Kátu ekkjunni
Georges Bizet Söngur nautabanans úr Carmen
Sveinbjörn Sveinbjörnsson Lofsöngur
Jóhann G. Jóhannsson Hvers vegna varst’ ekki kyrr?
-
Hljómsveitarstjóri
Bjarni Frímann Bjarnason
-
Einleikari
Sigurgeir Agnarsson
-
Einsöngvarar
Dísella Lárusdóttir
Eggert Reginn Kjartansson
GDRN
Ólafur Kjartan Sigurðarson
Pálmi Gunnarsson
Rebekka Blöndal
Valdimar Guðmundsson
-
Kynnar
Guðni Tómasson
Halla Oddný Magnúsdóttir
-
Kór
Söngsveitin Fílharmónía
-
Kórstjóri
Magnús Ragnarsson
Undanfarinn áratug hefur Klassíkin okkar notið fádæma vinsælda í tónlistarlífi landsmanna en þessir tónleikar eru nú haldnir í tíunda sinn í beinni útsendingu á RÚV. Nú hugum við að söng lífsins og veltum fyrir okkur af hverju við syngjum. Fullyrða má að söngurinn sé ein elsta leið mannkyns til tjáningar og samskipta. Við syngjum okkur í gegnum lífið; í leikskóla og jarðar förum, í bílnum og í sturtu, þegar við svæfum og þegar við elskum, þegar við hvetjum eða viljum upplifa samstöðu. Stundum syngjum við ein, stundum í hóp, stundum fallega en svo er auðvitað hægt að öskursyngja ef svo ber undir.
Hér flytja margir af okkar fremstu söngvurum tónlist sem tengist hinum ýmsu athöfnum okkar og viðburðum á lífsleiðinni; frá tregafullum kvöldsöngvum til glaðværra gamansöngva. Það er Bjarni Frímann Bjarnason sem heldur um tónsprotann og leiðir Sinfóníuhljómsveit Íslands á þessum fjölbreyttu og skemmtilegu tónleikum.