| Dagsetning | Staðsetning | Verð |
|---|---|---|
| 29. jan. 2026 » 19:30 » Fimmtudagur | Eldborg | Harpa | 2.990 - 5.900 kr. |
-
Efnisskrá
María Huld Markan Sigfúsdóttir Benthos- frumflutningur
Sir James Macmillan Básúnukonsert
Bára Gísladóttir DÆGRIN – frumflutningur
Snorri Sigfús Birgisson Konsert fyrir hljómsveit nr. 2
-
Hljómsveitarstjóri
Sir James MacMillan
-
Einleikari
Jón Arnar Einarsson
Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands á Myrkum músíkdögum verða frumflutt tvö ný íslensk tónverk, eftir þær Báru Gísladóttur og Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur.
Ferill Báru er á mikilli uppleið og hefur hún hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir tónsköpun sína. Nú síðast hlaut hún heiðurs verðlaun Carls Nielsen og Anne Marie Carl-Nielsen, ein virtustu menningarverðlaun sem veitt eru í Danmörku. Tónlist Maríu Huldar hefur hvarvetna vakið athygli, en hún hefur samið tónlist fyrir hljómsveitir, hljóðfærahópa af ýmsum stærðum, kóra, innsetningar og kvikmyndir.Tónlist hennar hefur verið hljóðrituð og gefin út á alþjóðavettvangi af bandaríska útgáfufyrirtækinu Sono Luminus.
Á tónleikunum verður einnig fluttur hljómsveitarkonsert nr. 2 eftir Snorra Sigfús Birgisson en konsertinn hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem tónverk ársins 2024.
Skoska tónskáldið Sir James MacMillan er hljómsveitarstjóri tónleikanna en óhætt er að fullyrða að hann sé eitt þekktasta tónskáld samtímans. Sinfóníuhljómsveitin hefur flutt nokkur verka hans í áranna rás en á þessum tónleikum hljómar básúnukonsert hans frá árinu 2017. Einleikari í þessum krefjandi en áhrifamikla einleikskonsert er leiðari básúnudeildar hljómsveitarinnar, Jón Arnar Einarsson.
Tónlistarhátíðin Myrkir músíkdagar er ein elsta tónlistarhátíð landsins, stofnuð árið 1980 af Tónskáldafélagi Íslands og hefur Sinfóníuhljómsveit Íslands verið þátttakandi á hátíðinni frá upphafi.
*Breyting hefur verið gerð á efnisskrá tónleikanna, í stað frumflutnings á verki eftir Kjartan Sveinsson flytur hljómsveitin Benthos eftir Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur.






