EN

Sinfónískir dansar

Áskrift að tónleikaröð eða Regnbogakorti tryggir þér öruggt sæti á besta verðinu með 20% afslætti
Dagsetning Staðsetning Verð
17. nóv. 2022 » 19:30 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa 2.900 - 8.700 kr.
Tónleikakynning » 17. nóv. kl. 18:00 — Hörpuhorn

Rússneska tónskáldið Sofia Gubaidulina, sem fagnaði níræðisafmæli í fyrra, er óhrædd við að velja verkum sínum heimspekilegt og trúarlegt inntak og tekst hún gjarnan á við stærstu spurningar mannlegrar tilvistar í tónlistinni. Meðal nýjustu meistaraverka hennar er konsert fyrir fiðlu, selló og bajan (rússneska hnappaharmóníku) en það var samið árið 2017 fyrir Sinfóníuhljómsveitina í Boston. Verkinu var afar vel tekið og voru gagnrýnendur á einu máli um að hér væri komið eitt af merkustu verkum Gubaidulinu. Talan þrír gegnir lykilhlutverki í verkinu, enda innblásið af heilagri þrenningu.

Lettneski fiðluleikarinn Baiba Skride hefur komið tvisvar fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands og ávallt fengið frábærar viðtökur. Hollenski sellóleikarinn Harriet Krijgh hefur leikið með mörgum helstu hljómsveitum heims og er prófessor við Tónlistarháskólann í Vínarborg. 

Sinfónískir dansar Sergejs Rakhmanínovs voru síðasta verkið sem tónskáldið lauk við og sýnir það glöggt hve meistaraleg tök þetta mikla píanótónskáld hafði á skrifum og útsetningum fyrir sinfóníuhljómsveit. Líkt og í fleiri verkum Rakhmanínovs ber tónlistin keim af fortíðinni og þótt sá síð-rómantíski andblær sem svífur yfir vötnum í ævintýralegum dönsunum hafi ekki verið að allra skapi þegar verkið var frumflutt 1941 hefur það fyrir löngu skapað sér sess meðal bestu hljómsveitarverka tónskáldsins.

Páll Ragnar Pálsson stundaði framhaldsnám í tónsmíðum í Eistlandi og strengjaverkið Yfirráðandi kyrrð var frumflutt af Kammersveitinni í Tallin og vakti þar mikla hrifningu. Í kjölfarið var verkið tilnefnt til alþjóðlegu Rostrum-verðlaunanna.