Dagsetning | Staðsetning | Verð |
---|---|---|
18. maí 2017 » 19:30 » Fimmtudagur | Eldborg | Harpa | 2.500 - 7.200 kr. |
-
Efnisskrá
Ambroise Thomas Mignon, forleikur
Claude Debussy Petite suite
Ernest Chausson Poème
Maurice Ravel Alborada del gracioso
Pablo de Sarasate Carmen-fantasía
Pjotr Tsjajkovskíj Capriccio italien
-
Hljómsveitarstjóri
-
Einleikari
Hljóðfærasnillingar 19. aldar settu gjarnan saman í syrpur dáðustu aríur úr þeim óperum sem nutu mestrar hylli; hvað tæknikröfur snertir eru þessar útsetningarnar oft á mörkum hins ómögulega. Flestar þessar syrpur eru nú öllum gleymdar, en undantekningin er hin vinsæla Carmen-fantasía spænska fiðlusnillingsins Sarasates. Hér er að finna öll vinsælustu stefin úr óperu Bizets, í bland við tilþrifamikið virtúósaspil og fingurbrjóta. Hollenski fiðluleikarinn Simone Lamsma leikur Carmen-fantasíuna og einnig hið ljúfa og ljóðræna Poème. Lamsma hefur vakið mikla athygli síðustu ár fyrir leik sinn og gagnrýnendur hafa dáðst að „ægifögrum, fáguðum og tjáningarríkum“ leik hennar. Hún leikur á Stradivarius-fiðlu frá árinu 1718.
Fyrri hluti tónleikanna er helgaður frönskum tónskáldum en eftir hlé verður haldið lengra suður. Capriccio italien („Ítölsk gletta“) er eitt vinsælasta hljómsveitarverk Tsjajkovskíjs, samið í Róm og kryddað með léttum ítölskum götusöngvum. Kætin er einnig í fyrirrúmi í spænskum morgunsöng Ravels sem er eitt hans glæsilegasta hljómsveitarverk.