EN

Mahler og Debussy

Áskrift að tónleikaröð eða Regnbogakorti tryggir þér öruggt sæti á besta verðinu með 20% afslætti
Dagsetning Staðsetning Verð
21. feb. 2020 » 19:30 - 21:00 » Föstudagur Eldborg | Harpa 2.600 - 8.100 kr.

Glæsileg tónlist tengd hafinu og vorinu hljómar á þessum tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands undir stjórn finnska hljómsveitarstjórans Hannu Lintu. Hann er aðalstjórnandi Útvarpshljómsveitarinnar í Helsinki og hefur áður stjórnað Sinfóníuhljómsveit Íslands með stórkostlegum árangri. „Undir stjórn Hannu Lintu fékk Sinfóníuhljómsveit Íslands að láta öll blæ-, styrk- og litbrigði njóta sín; flutningurinn var allan tímann stórskemmtilegur og spennandi“ sagði tónleikarýnir Morgunblaðsins um flutning hans á sinfóníum Beethovens í Hörpu árið 2011.

Hin franska Lili Boulanger lést aðeins 24 ára gömul árið 1918 en hafði þá þegar samið glæsileg tónverk, meðal annars hina ljúfu vorstemningu sem hljómar í upphafi tónleikanna. Des Knaben Wunderhorn, eða Drengsins nægtahorn, er heiti á safni þýskra þjóðkvæða sem gefið var út árið 1805. Fjölmörg tónskáld sömdu lög við kvæðin en ekkert sótti þangað innblástur í sama mæli og 

Gustav Mahler, en söngvaflokkur hans er sannkallað meistaraverk. Tónlistin og textarnir spanna allt frá ástarsorg til stríðsátaka, eru ýmist kaldhæðin, bitur, glaðvær eða íhugul.

Hafið er í forgrunni á síðari hluta tónleikanna. Sjávarmyndir Brittens eru röð hljómsveitarþátta úr hinni mögnuðu óperu Peter Grimes, þar sem sjómaður tekst á við eigin breyskleika og óvild samfélags í enskum sjávarbæ. La mer er hið mikilfenglegasta af hljómsveitarverkum Debussys, eins konar sinfónía um hafið, vindinn og öldurnar. Í þessu verki fær hljómsveitin að sýna allar sínar bestu hliðar.

Bandaríska mezzósópransöngkonan Michelle DeYoung er einstaklega innblásinn túlkandi og sérhæfir sig meðal annars í tónlist Mahlers. Hún hefur sungið við Metropolitan-óperuna og Covent Garden og kemur reglulega fram með fremstu sinfóníuhljómsveitum heims, til dæmis Concertgebouw-hljómsveitinni í Amsterdam og Staatskapelle Berlin undir stjórn Daniels Barenboim.

Athugið að þessir tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands eru á föstudegi.

Sækja tónleikaskrá